VL heildverslun ehf - Hverafold 138, 112 Reykjavík, Ísland- sími +354 517- 1300  [email protected]

Angelcare 1120

Angelcare Barnavakt AC 1120

 

      Video í lit –

             Fylgist með vöggunni í beinni útsendingu án þess að opna hurðina og vekja barnið.
             Hægt er að breyta stefnu myndavélarinnar eftir hentusemi.

      Dag og nætursjón –

             Innrauða myndavélin getur sýnt þér hvað gerist í herberginu öllum stundum – líka á næturna!
             Þetta er einstaklega gott þegar maður vill ekki hætta á að vekja barnið með óþarfa lýsingu.

    LCD snertiskjár –

            Mamma og pabbi geta breytt stillingum á tækinu með einu handtaki á 2.75" snertiskjánum.
 

      Tal milli tækja –

             Með Angelcare AC-1120 getur þú ekki einungis heyrt í barninu þínu heldur getur þú rætt við það
             og róað barnið með því að nota móttökutækið sem talstöð.
 
 
 
 

     Hitastigið í lagi-

            Innbyggður hitamælir fylgist með lofthita í herbergi barnsins og lætur þig vita þegar hann fer út fyrir sett mörk.
            Hvort sem það er of kalt eða of heitt.
 

    Ekkert suð og engar truflanir-

            Tækin eru alveg laus við truflanir og suð og hægt er að velja um 8 rásir á tækinu til að tryggja bestu hljómgæðin.

     Farðu á ferð og flug með móttökutækið-

            Það er með hleðslurafhlöðu og því algerlega óháð snúrum og köplum!
            Drægnin er líka mjög góð eða allt að 200 metrar við góð skilyrði.

    Fallegt næturljós –

            Innbyggt næturljós gefur þæginlegan og mjúkan bjarma frá sér –
            sérstaklega hentugt þegar maður vill sinna barninu án þess að vekja það að fullu.
 

     Alltaf í sambandi-

            Drægnin er frábær á tækinu, allt að 200 metrar við góð skilyrði.
            Ef tækið missir samband lætur það þig vita – strax!
 

     Ekkert óvænt-

            Ólíklegt er að rafhlöður tækisins verði tómar þar sem tækið lætur þig vita
            þegar það er kominn tími til að setja þær í hleðslu. Auk þess lætur það þig vita ef
            foreldratækið er komið of langt frá móðurtækinu svo þú heyrir öll hljóð og hreyfingar barnsins þíns.            
 

    Þysja inn og þysja út-

            Hægt er að þysja inn svo þú sjáir barnið betur. 
 

     Færanlegur þrífótur-

                Stilltu myndavélina til að ná sem besta sjónarhorni af barninu þinu-og í góðri fjarlægð frá barninu. Frábært að geta fylgst
            með barninu inn í herbergi og þegar það vaknar! 
 

      Að finna foreldratækið-

             Mjög auðvelt er að finna foreldratækið því aðeins þarf að ýta á einn takka og þá er leitin auðveld.
 

      Teljari-

             Hægt er að velja teljara til að fylgjast með hversu lengi barnið sefur eða vakir. 
 
 
Notkunarupplýsingar
 
0 kr.
Setja í körfu